Um Grástein
Frá árinu 1997 hefur verið vaxandi áhersla á steinsmíði og framleiðslu á vörum
og einingum úr íslensku nátturugrjóti til nota í umhverfi húsa/gatna. Samhliða steinsmiðjunni er rekin verktakadeild sem tekur að sér stór sem smá verkefni á sviði skrúðgarðyrkju og yfirborðsfrágangs. Hjá Grásteini starfa að jafnaði 7-12 manns allt árið með 5 ára starfsreynslu að lágmarki. Þrír skrúðgarðyrkjumenn
eru í hópnum og einn byggingafræðingur. Hæfni þessara manna hafa gert Grásteini kleift að taka að sér afar fjölbreytt verkefni í gegnum tíðina og eignast stóran hóp viðskiptavina í leiðinni. Eigandi Grásteins er Þorkell Einarsson sem útskrifaðist sem skrúðgarðyrkjumeistari árið 1987 frá Garðyrkjuskóla ríkisins.
Þekking
Metnaður Grásteins ehf liggur í að skila góðu verki og vöru, einnig að auka á fjölbreytni hluta/efnis úr íslensku
grjóti á viðráðanlegu verði. Smá saman hefur Grásteinn veriða að auka véla- og tækjakost fyrirtækisins
auk þess sem reynsla og þekking starfsmanna fer sífellt vaxandi. Að undanförnu hafa verið gerðar ýmsar prófanir á vörum og verða þær upplýsingar aðgengilegar á heimasíðu okkar í framtíðinni.
Grásteins er félagi i
Samtökum iðnaðarins,
Félagi skrúðgarðyrkjumeistrara og
Ábyrgðarsjóði MSI