Hellur og flísar
Mikið hefur færst í aukana notkun á íslenskumnáttúrustein í hellu og flísalagnir. Í gegnum árin hefur Grásteinn framleitt hellur flísar í fjölmörg verkefni með glæsilegum árangri. Hellur og flísar úr náttúrustein gefa gott heildarútlit og eru tímalaust tákn um góð gæði, frábæra endingu og fallegt útlit. Notkunarmögleikar náttúruflísa og náttúru hellna eru fjölmargir og hafa náttúruflísar og hellur frá okkur verið notaðar í fjölmörgum verkum.
Sem dæmi um notkun
Innkeyrslur
Göngustíga
Gólf innandyra sem utan
Veggi innandyra sem utanr
Garðpallar
Húsaklæðningar
Flísar frá Grástein hafa bæði verið límdar beint á veggi og hengdar á upphengigrind (kerfi) innan sem utandyra, bæði með sléttri og brotinni áferð. Einnig hefur verið hannað upphengikerfi á hús þar sem steinn (flís) með náttúrulegri framhlið er límdur á hús.
Til að ná sem bestum árangri og tryggja endingu á gólfflísum utandyra eða á sólpalla er best að leita til starfsmanna Grásteins eða múrarameistara um ráðgjöf á límingu og efnisnotkun.